20apríl

Satana Perkele!

Ok.. Nú er þetta komið. Ég hef ákveðið að þegar ég verð þrítugur ætla ég ekki að halda upp á afmælið mitt. Ég ætla bara að halda upp á þrítugsafmælið hjá Agga og bibba aftur. Þetta var náttúrulega bara allt of gaman! Ég er bara því sem næst orðlaus.. Ásamt þeim tónleikum sem ég hef farið á með mínum uppáhaldstónlistarmönnum þá er þetta bara það skemmtilegasta sem ég hef nokkurn tímann gert! Djöfull voru allir að halda sér.. Og fá sér! Aggi og bibbi eiga mínar bestu þakkir ásamt öllu því góða fólki sem að skemmti mér í gær. Að ógleymdum hinum afmælisbörnunum, þeim Sunnu og Birnu. Gullfallegar, skemmtilegar og fjandi fínar. Mig rekur bara í rogastans við að hugsa um þetta. Össsssss... Góð helgi.. Að mestu alla vega. Lang mestu.

Lag dagsins er Gullið á Raufarhöfn með Flosa Þorgeirssyni
20. apríl 2008 klukkan 21:18
Jóhann Hermannsson
Almennt
10 athugasemdir
17apríl

Árans déskotinn!

Komandi helgi leggst geysivel í mig. Ekki nóg með það að veðurspáin er barasta fín (í fyrsta skiptið í svona ca. 12000 ár) heldur verða þrítugsafmæli út um allt. Hreinlega ekki þverfótað fyrir afmælum og ef maður passar sig ekki gæti maður hreinlega dottið um eitt slíkt.. Alla vega verður nú eitthvað dottið. Mjög hugsanlega bara hrunið í það.

Sum sé.. Hækkandi sól er að gera sig og sitt fyrir mitt litla svarta sálartetur og hreinlega hoppa ég út um allt eins og lítill kiðlingur með njálg. Sérlega bærilegt allt saman. Nú er bara að vona að gula helvítið geti brætt hvíta ógeðið burt sem fyrst. Ef að þessi snjór fer ekki að fara neyðist ég til að fara út og berja hann í andlitið.

Annars var ég að láta bæta í tattúið mitt. Myndi henda inn myndum ef ég nennti því. Þið verðið bara að koma og sjá í staðinn.

Svo er líka pöbbkviss á Húsavík á morgun. Ekkert að því! Verður gaman að sjá hvort Alli þorir að mæta eftir að hafa beðið afhroð í síðasta skipti. Ég stefni á sigur að sjálfsögðu. Stefni ótrauður á að rústa fyrrum liðsfélaga mínum honum Aðalsteini. Það hefur bersýnilega komið í ljós hver dróg vagninn á Grand Rokk í gamla daga.. Vil ég meina að án þess að hafa mig við hliðina á sér sé Alli svona svipað góður í Pöbbkvissi og Derby er í úrvaldeildinni..Hlæjandi

Lag dagsins er hið stórkostlega Don´t break the Oath með Mercyful Fate!
17. apríl 2008 klukkan 20:59
Jóhann Hermannsson
Almennt
2 athugasemdir
10apríl

Afmćli!

Steven Seagal á afmæli í dag. Í tilefni þess er ég að hugsa um að fara niður í bæ og úlnliðsbrjóta einhvern..

En að öðru.. Í ljósi kúgunar Kínamanna á blessuðum Tíbetbúunum hef ég ákveðið að hunsa Ólympíuleikana í Peking. Þ.e.a.s. ef ég skyldi fyrir einhverja óskiljanlega tilviljun ná ólympíulágmarki í einhverri keppnisgreininni ætla ég ekki að taka þátt!

Lag dagsins er Always the Sun með the Stranglers.
10. apríl 2008 klukkan 19:16
Jóhann Hermannsson
6 athugasemdir
09apríl

Pangolin!

Nú hef ég um langa hríð haft mikinn áhuga á dýrum. Og sérstaklega á sérkennilegum, skrýtnum dýrum. Eitt þeirra sem ég hef sérstakt dálæti á heitir upp á útlenska tungu Pangolin og er Afrískt að uppruna.
..Nema hvað. Fá ef einhver dýr eru jafn hrikalega svöl í útliti! Representerar þungarokkið alveg í botn.
Fyrir það fyrsta þá er það klætt í brynju sem jafnvel hörðustu Black-Metal tónlistarmenn gætu verið stoltir af að skrýðast.
Í annan stað er brynjan flugbeitt! Hversu kúl er það??
Í þriðja lagi borðar skepnan grjót. Það er hardcore.. (Að vísu er aðalfæðan termítar og maurar.)
Og Fjórða kúlið er það að skepnan er prýdd risastórum klóm sem geta tætt niður termítabú á no time!

Einnig er merkilegt við þessa furðuskepnu að sú stöð heilans sem snýr að því að leysa vandamál er býsna vel þróuð og nýtist dýrinu vel við það að finna æti við erfiðar aðstæður og því um líkt.. Sem að veldur vísindamönnum og dýragarðsvörðum einnig töluverðum vandræðum því blessað dýrið er víst sérlega klókt við það að sleppa úr prísundum ýims konar og er oft kölluð Houdini-skepnan.

Nokkrar myndir.
Svalur fjandi!!!

Pangolin-knöttur
Krútt-Pangolin

(edit) Var næstum búinn að gleyma!! hjúkket... Lag dagsins er Final Cremation með Monstrosity.
09. apríl 2008 klukkan 20:53
Jóhann Hermannsson
2 athugasemdir
03apríl

Gaman ađ ţessu!!

Gúdd sjitt!

Langt síðan síðast..

En alla vega. bibbi vinur minn hafði samband við mig um daginn út af smá hugmynd sem hann geymir í skrattakollinum sínum. Sökum ofboðlegrar leyndar ætla ég ekki að fara nánar út í hugmyndina heldur ætla ég að huga að afleiðingum hennar. Við sem sagt neyddumst til að skrafa og skeggræða um óld skúl dauðarokk (bibbi er einmitt afbragsgóður skrafari og skeggræðir eins og enginn sé morgundagurinn!).
Gamla dauðarokkið er nefnilega ævafornt áhugamál okkar beggja en síðustu ár höfum við sorglega lítið einbeitt okkur að þessari frómu stefnu. En alla vega.. Eftir töluvert spjall og heilaóveður og gúggl ýmis konar rákumst við á einhvern déskotans topp 20 lista yfir bestu dauðu plöturnar. Og okkur að óvörum tróndi platan "Unquestionable presence með bandinu Atheist á toppnum. Hvorugur okkar kannaðist við kauða og hófumst við strax handa við að reyna að eignast gripinn á ólöglegan hátt.
Nema hvað. Platan er komin í hús og þetta er svona mikil glimrandi helvítis snilld! Djassað, proggað, latínóskotið dauðarokk flutt af afbragðs tónlistarmönnum! Ekkert að þessu!!

Töluverður "Death" keimur af þessu en það hefur nú heldur aldrei komið að sök. Þetta verður nú væntanlega til þess að maður hellir sér aftur af fullri alvöru í þessa stefnu og er stefnan sett á að ná í helstu meistarastykki Monstrosity, Death, Pestilence og Morbid Angel.

Good times ahead!

Lag dagsins er Mother Man með Atheist..

03. apríl 2008 klukkan 22:46
Jóhann Hermannsson
Tónlist
8 athugasemdir
13mars

Partýstuđ!

Ég er andlaus og nenni sjaldnast að blogga núorðið. Ég kenni slabbinu um enda er margsannað af færustu vísindamönnum heims að slabb sýgur úr manni sálina og gerir allt mun verra. Djöfulli andskoti verður nú hryllilega fínt þegar að sumarið kemur og maður getur farið að hoppa um hóla og tún eins og fullur hrútur í leit að digurri ær.
Og að sjálfsögðu kemur Roskilde Festival með sumrinu. Er búinn að kaupa miða og flug og nú er bara að sperra gönurnar og bíða þrælspenntur! Hátíðin er að taka á sig mynd og stefnir bara í geypi gott lænöpp. Sér í lagi fyrir rokkhund eins og mig. Besta hljómsveit alheims-sögunnar er að sjálfsögðu búin að bóka sig. Enda var þeim ekki stætt á öðru eftir að hafa beilað í fyrra. Einnig eru þarna geysigóð og áhugaverð bönd eins og
At the Gates, Clutch, Dillinger Escape Plan, Job for a Cowboy, Band of Horses, Neil Young, Radiohead, My bloody Valentine, Kings of Leon, The Streets og að sjálfsögðu Metal-frumkvöðlarnir í Judas Priest! Ekkert að þessu!
Endilega hoppið með mér á bandvagninn og kíkið með til Roskilde. Ég skal taka að mér að vera túrgæd á Hátíðinni og í Christianiu og á fleiri helstu stöðum Danaveldis. Þetta verður magggnað.
Annars er lítið að frétta.. Maður er aftur farinn að kíkja til Hú eftir allnokkra bið. Enda virðist góða fólkinu á Bauknum vera að takast að sparka smá lífi aftur í þetta dauða hross sem að Víkin var orðin. Gott að hugsa til þess að einhverjir hafa ennþá metnað til þess að gera eitthvað í þessum bæ sem ekki tengist álveri. Kíki eitthvað austur yfir um páskana en veit ekki enn hversu mikið.. Allavega nógu mikið til að fá mér einn bjór. Það er morgunljóst!

Lag dagsins er Jesus was a terrorist með Jello Biafra og No means No.
13. mars 2008 klukkan 20:22
Jóhann Hermannsson
Almennt
7 athugasemdir
25febrúar

Eigum viđ ađ skella í eina dúkku?

Danmerkurferðin var afbragð. Var með góðu fólki og brallaði ýmislegt. Já og svo drakk ég býsnin öll af bjór og Jack í Hancock Cola. Ekkert að því. Alltaf gaman að hitta lýðinn þarna úti og sjá hvað þau eru að bralla. Við ferðafélagarnir fórum til að mynda í heimsókn í saumaklúbb og þurftum á öllu okkar að halda til að verða ekki nauðbeygðir til að vinna einhverja sweatshop-vinnu í Christinshavn. En það var nú bara gaman.
Mars Volta héldu sér vel og voru í stemmningunni. Spiluðu lengi og höfðu hátt og voru með læti. Svona eins og gerist.
Já og svo fór ég í leiðinlegustu búðarferð allra tíma þegar við biðum eftir Gísla í hálfan sólarhring í kafarabúð á Vesterport.. Djöfullinn hafi þau leiðindi. En þetta var nú þrátt fyrir það bara fín ferð. Gott fólk. Hellingur af góðri tónlist og danskar pylsur.. Gerist ekki betra.
Ætli maður sé nú ekki skyldugur til að fara aftur í sumar til að sjá Slayer flokkinn á Roskilde. Er ekki bara málið að safna í góðan hóp? Endilega látið vita ef áhugi er fyrir hendi. Nema þið séuð fífl.. Þá nenni ég ekki að leika.

Lag dagsins er Lost Johnny með Hawkwind
25. febrúar 2008 klukkan 20:54
Jóhann Hermannsson
Almennt
5 athugasemdir
18febrúar

Ţađ vantar meiri kúabjöllu!!

Hmmm.. Út á fimmtudag. Tjill og stuð í köben. Mars Volta á föstudag. Meira tjill og gaman með góðu fólki. Heim á sunnudag. Hljómar ágætlega bara. Best að ég skelli mér.

Ekkert annað að frétta svo sem.. hlakka til að fara út. Það verður kærkomin tilbreyting frá grámyglu raunveruleikans hérna heima. Nauðsynlegt að flýja við og við. Koma svo endurnærður og með skemmtilegar sögur til baka.

Annars fékk ég símhringingu frá Gumsinu gráa um daginn. Þá stakk hann upp á því að við tækjum svona eins og einn skottúr til Kína um síðsumarsleitið. Það gæti verið ágætt. Er að spá í þessu.
Annars lítur Roskilde líka ágætlega út. At the gates, Clutch, Job for a Cownoy, Radiohead og My bloody Valentine. Ekkert að því. En þetta kemur allt saman í ljós. Væri mjög ólíkt mér að ákveða eitthvað núna. Þess vegna er best að bíða með það fram á síðustu stundu. Bara svona til að valda ykkur ekki vonbrigðum.

Fór á Rambo í gær. Heimsmet í ofbeldi. Rambo er alltof svalur til að nota veiðistöng. Hann skýtur fiskana með risastórum boga! Djöfulsins snilld! 5 blóðug barkakýli af 5 mögulegum.

Lag dagsins er Gold með Spandau Ballet
18. febrúar 2008 klukkan 17:29
Jóhann Hermannsson
Almennt
7 athugasemdir
14febrúar

Brjálađur!

Djöfull þoli ég ekki helvítis Valentínusardaginn. Alveg hreint óþolandi að einhverju djöfulsins fíflinu hér á klakanum hafi dottið í hug að reyna að halda upp á þennan Bastarðs "hátíðisdag". Nú höfum við bæði Bóndadaginn og Konudaginn. Sem að gerir þetta skrýpi með öllu óþarft og tilgangslaust. Eða, jú.. Ætli tilgangur dagsins sé aðallega ekki sá að ömurlegar útvarpsstöðvar landsins geta þá spilað meira af ömurlegum óinnblásnum belgingslögum um annað hvort óendurgoldna ást eða enn verri sykurleðjusætum lögum um endurgoldna ást.
Ef að svo ólíklega vill til að ég nái mér einhvern tímann í konu verður hún að sætta sig við það að þetta verður eini dagur ársins sem að hún getur ekki átt von á því að ég komi færandi hendi með konfektkassa eða blóm. Ekki séns að ég hlaupi undir rassgatið á helvítis kanasleikjandi peningaplokkurum! ..Svo er líka kalt úti!

Lag dagsins er The boy with the thorn in his side með The Smiths
.
14. febrúar 2008 klukkan 18:33
Jóhann Hermannsson
Almennt
7 athugasemdir
10febrúar

Er í ruglinu.

Mér finnst ágætt að vera fullur. Hef líka verið fullur með hléum í næstum þrettán ár. Sem að þýðir það að maður hefur marga fjöruna sopið og teygað lopann býsna oft. Og þ.a.l. hefur maður endrum og eins orðið þunnur. Og stundum illa þunnur. En núna hefur tekið steininn úr.. Braut öll lögmál þess að láta sér líða illa í dag. Það var bara eins og ég hefði drukkið edik og díselolíu til skiptis í gærkvöld. Hryllilegt alveg hreint! Ég kenni hryllilega vonda fordykknum á broadway um. Hann alla vega leit út og bragðaðist eins og hann væri búinn til úr apahlandi og útrunnu tannkremi. Samt ákvað ég nú að drekka 6 glös af honum. Maður er náttúrulega svo ofboðslega snjall!
 Annars var þetta bara ágætis suðurferð.. Hitti nokkuð af góðu fólki og svoleiðis.. Fínt að gista líka á hóteli eins og aðalsmaður. Djöfull var samt leiðinlegt að þurfa að sitja í óþægilegum bíl í ömurlegu veðri í nokkra tíma á fös. Var orðinn alveg brjálaður í skapinu. En það rann nú fljótt af mér þegar ég komst á hringbrautina til lopasneiðarinnar. Ég og yngri helminguur hringbrautarbúa horfðum líka á svo stórfenglega mynd á rúvinu. Bona fide hasarmynd um bókasafnsvörð! Ekkert að því!!
 annars er gaman að segja frá því að ég er svo skjálfhentur að það er búið að taka mig hálftíma að skrifa þessi örfáu orð.. Ætla í drykkjupásu alla vega fram að næstu helgi.
Annars var Addi að tuða yfir því að hann þekkti aldrei lög dagsins hjá mér. Þannig að lag dagsins í dag er tileinkað Sneiðinni og er Ertu þá farinn með Skítamóral.

Og þá er ég farinn!

10. febrúar 2008 klukkan 21:47
Jóhann Hermannsson
Almennt
5 athugasemdir

Ađalvalmynd

Klukkan

Tilvitnunin

"I'm prepared to die, remember that. And when you're ready let me know. Write that! Write that I'm ready to die for metal and you're not!"

Joey DiMaio. Forsprakki Manowar

Ţessa stundina

-Platan
Death is this communion, High on Fire
-Lagiđ
Turk, High on Fire
-Hljómsveitin
The Sword
-Bókin
Soul Music, Terry Pratchett

Könnun

Hvađ á ég ađ skýra köttinn? (ţ.e.a.s. ef ég fć mér kött..)

MSN

johanntool@hotmail.com

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit