08maí
Einhver lumbra..
Er eitthvað voðalega tómur að innan þessa dagana. Nenni ekki að gera neitt. Nenni ekki að laga til.. Nenni ekki að takast á við vandamál.. Nenni ekki út í góða veðrið.. Nenni barasta ekki neinu.. Eitthvað eru atburðir undanfarinna daga að koma sér illa fyrir á sálinni minni. Bæði fótboltatengt og annað.. Nenni ekki að hugsa um það.Fann hins vegar hrikalega fyndna síðu í dag. Balalaikufélag Washington heldur út gríðarlega flottri síðu og er ekki laust við að maður hugsi til myndarinnar stórgóðu "The mighty wind" þegar maður sér myndirnar af lýðnum. Síðan er hér.
