03febrúar
Farđu í rassgat Febrúar!
Ég mokaði af bílnum áðan. Þurfti að finna hann fyrst. Þetta var ekki í fyrsta skiptið um helgina sem ég þurfti að leita að bílnum mínum á bílastæðinu. Það hafa bara verið einhverjir ógreinilegir hvítir haugar þarna.Ég er heybrók og kveif. Ég fór ekki suður á lokatónleika I Adapt. Djöfullinn! En þetta er einn af ókostunum við að eiga sportbíl. Þeir eru ekki jafn góðir í vetrarfærðinni. Djöfull væri ég samt til í að eiga glæsilega græna Lödu Sport núna. Þá væri ég sko úti í torfærum að gera allt vitlaust. Annars er ég ekki búinn að gera baun um helgina. Bara hanga á netinu að ná í tónlist og skoða eitthvað drasl. Jú og svo er ég búinn að spila Lego Star Wars doldið mikið. Það er algjör snilld. Er skapi næst að eyða öllum peningunum mínum í alvöru tækni-Lego og loka mig inn í herbergi og smíða bíla og gröfur og þess háttar þangað til það kemur vor. Já eða bara byggja mér Lödu Sport úr legokubbum. Hversu mikil snilld væri það.
Jæja, lag dagsins er Winter´s Wolves með The Sword.
