14desember

Rétti tíminn.

Sá tími kemur í lífi hvers manns að hann þarf að vera með ljóta hormottu. hef ég ákveðið að næstu vikur séu sá tími. Hef ég því rakað af mér hökutoppinn sem lengi hefur verið mér svo kær og skilið eftir forláta, forljóta, þunna og asnalega hormottu. Ætla ég að þráast við og halda þessu fyrirkomulagi alla vega fram yfir áramót. Og hver veit.. Kannski verð ég þá búinn að taka ástfóstri við ófétið og ákveð að halda draslinu. Vona ekki samt..
Ætla að fara til Hú á eftir og hrynja í það og láta fólk gera grín að því hvað ég er asnalegur. Eiginlega lít ég út eins og ellefu ára strákur með ljótt yfirvaraskegg.. En kannski fíla gellurnar þetta. Alla vega hefur hitt lúkkið ekki gefist nógu vel.
Annars er ég bara hress. Dulítið svangur en hress..

Svalur gaur!

Bið að heilsa. Lag dagsins er Final Six með Slayer.
14. desember 2007 klukkan 15:42
Jóhann Hermannsson
Almennt
7 athugasemdir
12desember

Sjúbaba!!

Hey! Hver nennir að koma með mér á hvirfillinn á Hú um næstu helgi? Sökum anna yfir bláhátíðirnar hef ég ákveðið að flýta jóladjamminu svolítið. Ef að útreikningar mínir standast eru mér nefnilega svo að segja allar bjargir bannaðar í þessum efnum barasta fram á gamlárs.. Sem er náttúrulega alveg ótækt.

Annars er svo sem allt voða lítið að frétta. Þetta gengur sinn helvítis brokkandi vanagang og lítið gerist. Hef blessunarlega sloppið við að heyra jólalög af einhverju ráði.. Hef aldrei getað skilið það að fólk sætti sig við að hlusta á leiðinlega tónlist bara vegna þess að það er Desember!

Ætla að skella hér inn jútjúb hlekk sem þið verðið að skoða. Grenjaði úr hlátri þegar ég sá þetta fyrst. Hafið engar áhyggjur. Þetta er ekki dónalegt og ekkert svakalangt heldur.. Jútjúb hlekkur
hér!

Lag dagsins er Cut you with a linoleum knife með Mastodon.
12. desember 2007 klukkan 14:07
Jóhann Hermannsson
Almennt
2 athugasemdir
10desember

Jólakötturinn..

Þá er það ákveðið! Nenni ekki að fara í jólaskap þetta árið.. Fæ að öllum líkindum engar rjúpur og verð að vinna svo að segja öll jólin.. Húmbúkk!

Jólastuð
10. desember 2007 klukkan 13:34
Jóhann Hermannsson
Almennt
8 athugasemdir
05desember

Ţar fór í andskotans verra!

I Adapt

I Adapt, ein besta hljómsveit Íslandssögunnar hefur lagt upp laupana.. Djöfull.

En þeim til heiðurs ætla ég að skella inn link á eitt besta lag sem nokkurn tíma hefur verið samið. Here you go:
Sparks
Hlustið og njótið..

Uppfært: Hef hlustað svona 15 sinnum á þetta lag síðan ég setti linkinn inn og ég verð bara að segja að það er því sem næst óaðfinnanlegt!
05. desember 2007 klukkan 22:26
Jóhann Hermannsson
Tónlist
6 athugasemdir
28nóvember

Blóđ

Lítið að frétta svo sem. Ég náði því loksins um daginn að klára Dark Tower bækurnar eftir Stephen King og mæli ég svo sannarlega með þeim. Afbragðs skemmtun og ekki skemmir fyrir að vera dulítill King-nörd þegar maður leggst í þetta stórvirki. Alls konar vísanir í hinar og þessar bækur eftir höfundinn og alls kyns skemmtilegar tengingar. Var til að mynda býsna mikið um tengingar við eina eldgamla sögu sem heitir Salem´s Lot. Sá ég því enga aðra kosti í stöðunni heldur en að renna í bókabúð og ná í gripinn en þetta er ein fárra bóka King sem ég hef ekkert lesið. Salem´s Lot er sum sé bona fide hryllingssaga um vampírur og ég get svo svarið það að ég held ég sé að drulla á mig! Langt síðan ég hef orðið svona hræddur/spenntur yfir bók. Sem er náttúrulega ekkert nema gott og blessað. Núna er ég kominn með alveg afbragðs paranoiu og sé vampírur í hverju horni! Reyndi til að mynda að reka blýant í gegnum hjartað á pabba þegar hann lét grunsamlega.. Já og svo fer ég ekki út úr húsi lengur nema að hafa hvítlauksknyppi um hálsinn og vígt kók (svona eins og vígt vatn en bara betra á bragðið).

En allavega mæli ég með bæði Dark Tower seríunni og Salem´s Lot. Já og bara Stephen King almennt. Hann er töffari sem hlustar á AC/DC og skrifar skemmtilegar bækur!

úúú.. scary





Meistari King

28. nóvember 2007 klukkan 21:56
Jóhann Hermannsson
Almennt
9 athugasemdir
12nóvember

Ţađ styttist!

Paaaaaartý!!!!


Dillon.. Föstudaginn.. kl 20:00
12. nóvember 2007 klukkan 21:43
Jóhann Hermannsson
17 athugasemdir
08nóvember

Partý!!

Hey! Ég ætla í félagi við hina undurfögru og gjafvaxta Birgittu Paunxdóttir að halda upp á afmælið mitt á ölkránni Dillon föstudaginn 16. Nóv næstkomandi. Ef þú ert ekki leiðinlegur og fífl þá væri gaman að sjá þig þar. Samt ákveðið skilyrði að annað hvort okkar þekki þig.. Afmælisgjafir væru vel þegnar en þó ekkert nauðsynlegar. Heitið er gleði, stuði og góðum félagskap. Eitthvað verður um drykkjarföng á staðnum og almenn ölvun barasta ekkert illa séð. Ég persónulega lofa því að klassískir standardar á borð við Carry on my wayward son með Kansas, Alone með Heart, Forever Young með Alphaville og Time after time með Cindy Lauper fá að hljóma!

Mætið og höfum gaman!


P.S. ef þú varst á listanum yfir þá sem að máttu ekki fá far suður þá þarftu ekki að reyna að mæta.. Þér er ekki boðið!

08. nóvember 2007 klukkan 20:39
Jóhann Hermannsson
1 athugasemd
05nóvember

Smá svona..

Þakka öllum sem sendu mér afmæliskveðju í einhverju formi. Mér þykir vænt um þetta og mér þykir vænt um ykkur.
05. nóvember 2007 klukkan 15:39
Jóhann Hermannsson
Almennt
4 athugasemdir
04nóvember

Hryllilega gamall

Ég og Roy Rogers eigum afmæli í dag.
Gamli góði Roy

Lag dagsins er Carry on my wayward son með Kansas

04. nóvember 2007 klukkan 10:52
Jóhann Hermannsson
Almennt
6 athugasemdir
31október

Let´s start in style. Let´s dance for a while.

Alveg síðan ég fór að einhverju viti að hlusta á tónlist. Sem var ca. 1985 hefur hörð tónlist, þungarokk, pönk, grugg og þess háttar djöfulgangur átt einna mest upp á mitt fínpússaða, dúkalagna pallborð. Og oft á tíðum hefur það reynst mér best það sem er hvað tormeltast, harðast og aggresívast. Eeeeen upp á síðkastið hef ég fundið fyrir ákveðnum veikleikum í garð kraftballaða. Sem er svo sem ekkert nema gott. Enda kraftballöður alveg hreint stórskemmtilegar. Segið mér t.d. að þið getið hlustað á I remember you með Skid Row án þess að vilja syngja með og veifa kveikjurum! ..Ekki séns í helvíti. Eitthvað við þessar lagasmíðar kveikir í mér og vel samin powerballaða nístir mig alveg inn að innsta merg. Ég vil samt taka það fram að leiðinlegar ballöður svona eins Celine Fokking Dion og þessháttar skítugt andskotans hrágarnaétandi helvítis pakk flytur eiga ekki rétt á sér á mínu borði. Og ef hvaða Guð sem að trúir á mig lofar mun það aldrei gerast.

En allavegana! Hér eru örfá handahófsvalin dæmi from the top of my head um góðar Powerballöður:

Winds of Change, Scorpions
I remember You, Skid Row
Not such a nice Guy, Motörhead ásamt Ozzy og Slash
Patience, Guns & Roses
Listen to your Heart, Roxette (Já þetta er powerballaða!)

Og að lokum. Ef að þið getið sagt mér hvaða lag byrjar með titli þessarar bloggfærslu fáið þið sveitt, kámugt og innilegt knús frá mér í verðlaun.
31. október 2007 klukkan 20:33
Jóhann Hermannsson
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Tilvitnunin

"I'm prepared to die, remember that. And when you're ready let me know. Write that! Write that I'm ready to die for metal and you're not!"

Joey DiMaio. Forsprakki Manowar

Ţessa stundina

-Platan
Death is this communion, High on Fire
-Lagiđ
Turk, High on Fire
-Hljómsveitin
The Sword
-Bókin
Soul Music, Terry Pratchett

Könnun

Hvađ á ég ađ skýra köttinn? (ţ.e.a.s. ef ég fć mér kött..)

MSN

johanntool@hotmail.com

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit