29október

Kominn tími til

Ekki alveg í blogggírnum þessa dagana. Er samt alltaf að hugsa um eitthvað skemmtilegt að blogga í vinnunni en það bregst ekki að ég er fyrir svo lifandi löngu búinn að gleyma því þegar ég kem heim.. Svona er maður nú snjall og flinkur í hausnum.

En suðurferðin var barasta fín. Gerði margt skemmtilegt eins og að fá mér tattoo, borða góðan mat, skoða hryllilega fyndnar erótískar myndir sem eru eldri en sólin og vera fullur í góðra vina hóp. Hápunkturinn hlýtur samt að hafa verið stórfenglegir tónleikar Alabama Thunderpussy. Djöfull andskoti voru þeir hryllilega góðir! Og svona hressir og almennilegir í þokkabót.

Rétt bráðum verð ég árinu eldri.. Og sem betur fer ætla Ljótu hálfvitarnir að spila í skurðinum einmitt þá helgi. Það verður nú gaman að hitta kauðana og vonandi bralla eitthvað skemmtilegt. Gallinn við afmælisdaga, jól og áramót er hins vegar sá að ég verð oft eitthvað svo einmana. Þetta er nefnilega einmitt þeir tímar sem maður vildi helst hafa einhverja hjá sér til að halda upp á þetta með manni. En það er nú greinilega ekki á allt kosið..

En annars er ég nú bara í þokkalegu stuði.

Lag dagsins er The Lasting Doze með Crowbar.
29. október 2007 klukkan 20:41
Jóhann Hermannsson
Almennt
3 athugasemdir
16október

Suđurferđ!

Ef þú ert skemmtileg/ur þá mátt þú njóta þess heiðurs að fá far með mér til Reykjavíkur næstkomandi föstudag. Og jafnvel heim aftur á miðvikudag. Þannig er mál með vexti að það er barasta ekkert gaman að keyra einn til Reykjavíkur og væri góður félagsskapur vel þeginn. En takið eftir! Ekki biðja mig um far ef þú ert leiðinleg/ur. Þá er nú skárra að vera einn.

Svona til að hafa hlutina á hreinu ætla ég að birta smá lista yfir fólk sem má EKKI fá far..

Björn Ingi
Lars Ulrich
Árni Johnsen
Luxor-flokkurinn
Nælon-flokkurinn
Einar Ágúst
Valgerður Sverris
Arnar Grant
Magga sterka
Phil Neville
Gary Neville
Doobie Brothers
The Eagles
Svala Björgvins
Ásgeir Kolbeins
Biggi í Maus
Paris Hilton
Kevin Federline
Tom Cruise
Þórhallur miðill
Kristján Þór Júlíusson
Halldór Ásgrímsson
Pétur Blöndal
Gaui Þórðar
Bjarni Ármanns
gamli góði Villi

P.s. Lag dagsins er allavega ekki Saturday in the park með Chicago..

16. október 2007 klukkan 14:18
Jóhann Hermannsson
Almennt
16 athugasemdir
14október

Bara til ađ hafa ţađ á hreinu..

Calvin og Hobbes eru bestir í heiminum!!
snillingar!
14. október 2007 klukkan 21:54
Jóhann Hermannsson
Almennt
2 athugasemdir
11október

Hey satana hó satana!

Þar fór nú í heitasta hoppandi helvíti! Þannig að mál með vexti að tattúverarinn minn liggur heima með hægri framfótinn í gifsi þannig að ég get því miður ekki haldið áfram með nýja tattúið mitt alveg strax. En kannski að maður kíki þá bara á aðra stofu og fái sér tattú á einhvern annan líkamspart. Ennið eða lifrin koma einna sterkast til greina..

Suðurferð um þarnæstu helgi og er ég aðeins farinn að hlakka til. Verður gaman að hitta lýðinn og fá sér jafnvel einn eða tvo Guinness bjóra. Eða E. Finnsson bjór eins og flagarinn kallar það. Svo eru náttúrulega tónleikar.. Öss hvað það verður nú indælt að tylla sér á Gaukinn og hlusta á Alabama Thunderpussy flytja ómstríðar sónötur sínar!

Svo styttist nú líka í að maður geti haldið upp á klakdaginn. Hef heyrt það út undan mér að stórhljómsveit nokkur verði að spila á Græna Hattinum þá helgi þannig að maður getur vonandi haldið upp á það í góðra vina hópi..

Inn í herberginu mínu liggur biblíuþykkur bunki af skjölum frá Glitni sem ég get ómögulega fengið sjálfan mig til að byrja á að naga í gegn. Hinar og þessar umsóknir og heimabankanýbyggingar sem eiga að létta mér lífið til muna og tryggja mér þá albestu vexti og gera mig að milljarðamæringi á örfáum vikum. Djöfull er leiðinlegt að hugsa um peninga og græja eitthvað svona drasl! Drasl, Drasl Drasl!! En þær vilja vel elskurnar í Glitni á Hú.

Ég er soltinn.. Bæbæbæ.
11. október 2007 klukkan 18:21
Jóhann Hermannsson
Almennt
6 athugasemdir
03október

Spakmćli dagsins.

Óskaðu í hægri hendina og skíttu í þá vinstri. Sjáðu svo hver fyllist fyrr..
03. október 2007 klukkan 21:01
Jóhann Hermannsson
4 athugasemdir
30september

Aaahh.. Nostalgía..

Munið þið eftir hinum ógeðslega skemmtilegu þáttum The Storyteller? Þetta voru svona Jim Henson brúðuþættir sem voru kynntir af snillingnum John Hurt. Ég sá trailer fyrir þessa þætti á Youtube um daginn og ég get svo svarið það, ég pissaði næstum á mig sökum nostalgíu og minningaflóðs! Djöfull þarf ég að eignast þetta á DVD einhvern góðann daginn..


Trailerinn er
hér!
30. september 2007 klukkan 20:16
Jóhann Hermannsson
Almennt
1 athugasemd
21september

Bassskari..

Ég á mér uppáhaldskörfuboltamann.. Sá heitir Darko Milicic og spilar víst fyrir Memphis Grizzlies í NBA. Eina ástæðan fyrir því að hann er uppáhaldsleikmaðurinn minn er nylegt viðtal sem var tekið við hann eftir að Serbneska landsliðið tapaði fyrir Grikkjum. Kallinn er pínu ponsu ósáttur við dómarana og lætur hafa eftir sér örfá vel valin orð.
Endilega tjékkið á viðtalinu hér. Þetta þykir mér fyndið.
21. september 2007 klukkan 15:25
Jóhann Hermannsson
Almennt
2 athugasemdir
19september

Af mínu lífi..

Ef þið lesið þessa síðu eitthvað reglulega gætuð þið hafa tekið eftir því að ég hef ekkert verið neitt rosalega upprifinn af hamingju og tryllingslegri lífsgleði undanfarið. Ég verð bara að biðja ykkur um að harka af ykkur fýluna í mér meðan þetta stendur yfir. Vonandi skána ég sem fyrst og held þá áfram að vera skemmtilegur og fínn gaur. Just bear with me.

Annars er ég að reyna að ákveða hvað ég á að gera við mitt óheyrilega magn af dauða tíma. Langar dálítið til að byrja að fikta við að mála aftur.
Hef jafnvel verið að velta fyrir mér krosssaumi en það er spurning hvort ég missi ekki allt street credit ef ég sést í hannyrðabúðinni á Akureyri tvisvar á innan við ári. Einnig er ég með hugmynd að smásögu í kollinum sem ég er svoldið spenntur fyrir.
Er að vonast til að geta teygt conseptið upp í svona 20-30 síður án þess að þetta yrði of langt og leiðinlegt.

Komst að því um síðustu helgi að fólk sem ég þekki á Húsavík er orðið rosalega fátt. Sé ekki fyrir mér að ég verði jafn tíður gestur á klakstöðvunum þennan veturinn eins og oft áður. En á móti kemur að fólkið sem ég þekki á Húsavík og er á annað borð tilbúinn til að eyða einhverjum tíma með er alveg sérlega gott og yndislegt fólk.

En ef þið hafið uppástungur að góðum hobbýum er ég tilbúinn að skoða allt nema vatnslitamálun og að prjóna.

Hafið það gott og hugsið fallega til mín. Það hjálpar.
19. september 2007 klukkan 20:58
Jóhann Hermannsson
Almennt
6 athugasemdir
17september

Ég veit ekki neitt..

Utan við það að mig langar að klára tattúið mitt og sjá Alabama Thunderpussy í næsta mánuði veit ég ekkert hvað ég á að gera við líf mitt. Mig langar til að flytja eitthvert. Veit bara ekki hvert. Veit samt að mig langar helst ekki að flytja til Reykjavíkur. Veit ekki hvað mig langar til að læra eða vinna við. Veit sum sé afskaplega fátt þessa dagana.

Ég sakna margs. Ég sakna vina minna og ég sakna fólksins sem ég elska. Ég sakna hundsins míns heitins og ég sakna sjálfstraustsins míns. Ég sakna líka þess að hafa minnstu hugmynd um hvað framtíðin gæti borið í skauti sér. Ég sakna Hlöðufells og ég sakna Café Rosenberg. Umfram allt sakna ég allra góðu stundana sem maður getur því miður ekki lifað aftur. En það er sem betur fer hægt að hugsa um þær og endurlifa þær sem best maður getur.

Mikil ást..
17. september 2007 klukkan 21:57
Jóhann Hermannsson
Almennt
5 athugasemdir
14september

Dai with your boots on!

Ég var rétt í þessu að kaupa mér bíl. Sá heppni er spánýr Daihatsu Charade SG árgerð ´92. Hefur þetta mikilfenglega farartæki fengið hið þokkafulla nafn "METALELGURINN" og muna elstu menn ekki eftir janfglæsilegu farartæki á vegum landsins.

Aðspurður sagði Jeremy Clarkson (einn stjórnandi Top Gear) þetta um kaupin:
It may be the best buy in automotive history. Everybody knows the Charade SG is a piece of modern engineering marvel only rivaled by the Seven Rivers dam in China and the F22 fighter Jet.

Þegar hann var beðinn um að bera saman bílinn minn og bílinn hans Alla Jesú lét kappinn hafa þetta eftir sér:
To compare these two cars is simply laughable. The Charade is miles ahead of Alli´s piece of shit Subaru in every department.

Ljúka þurfti viðtalinu um þetta leiti þegar Hr. Clarkson féll í stafi og brast í grát þegar hann sá hve stórfenglegur bíllinn er af myndunum sem má sjá í myndaalbúminu á síðunni minni.

Hafið það gott. Metalelgurinn elskar ykkur öll!
14. september 2007 klukkan 17:24
Jóhann Hermannsson
7 athugasemdir

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Tilvitnunin

"I'm prepared to die, remember that. And when you're ready let me know. Write that! Write that I'm ready to die for metal and you're not!"

Joey DiMaio. Forsprakki Manowar

Ţessa stundina

-Platan
Death is this communion, High on Fire
-Lagiđ
Turk, High on Fire
-Hljómsveitin
The Sword
-Bókin
Soul Music, Terry Pratchett

Könnun

Hvađ á ég ađ skýra köttinn? (ţ.e.a.s. ef ég fć mér kött..)

MSN

johanntool@hotmail.com

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit