12september
Tónlist = Fólk
Nú er ég því miður ekki tónlistarmaður. Og meira að segja alveg laus við alla hæfileika á því sviði. Held hvorki takti né tón og þykir mér það miður. En samt sem áður skipar tónlist alls konar mjög stóran sess í mínu lífi og mætti segja að tónlist sé mitt helsta áhugamál. Eitt af því sem ég geri er að tengja ákveðin lög við fólk. Oft þegar ég heyri kannski eitthvað lag fer ég að hugsa um manneskju sem ég hef límt við lagið.T.d. er Gauti vinur minn límdur við lagið Land down under með Men At Work. (Gamall Isengard standard.)
Og ég hugsa alltaf um Yngva þegar ég heyri Hangar 18 með Megadeth eða the Decline með Nofx.
Bibba hef ég límt með tonnataki við Lunatic of God´s Creation með Deicide og Time after time með Cyndi Lauper.
Fyrir mér er það lífsiins ómögulegt að heyra God gave Rock & Roll to ya með Kiss án þess að hugsa til þeirra bræðra Himma og Jóa.
Albert Brown lagið sem ég held að sé með Dukes of the stratosphere er kyrfilega tattúað á Gumsið.
Svo ekki sé nú talað um Inside´s out með Mortal Sin og sterka tengingu þess við Sunnu.
Eftir að Birgitta setti textann við Big A, little a með Crass á síðuna sína hugsa ég alltaf fallega til hennar þegar ég heyri þetta lag.
Og svo náttúrulega Slade lagið sem ég man ekki hvað heitir sem Helga Bryndís syngur alltaf þegar við hellum upp á okkur í Birkimelnum.
Begga Hauks verður alltaf föst við banjólagið með Keith Urban sem ég man alls ekki hvað heitir.
Ástæður fyrir því að ég tengi lög við ákveðna manneskju geta verið ýmis konar. Eitthvað tiltekið atvik þar sem lagið hljómaði. Textinn í laginu. Já eða bara hvernig það hljómar.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi og þið megið ekki vera sár þó ég hafi ekki tiltekið ykkur og hvaða lag þið hafið. Þetta er bara tekið svona "from the top of my head".
Og ef að ég er tengdur einhverju lagi hjá ykkur megið þið alveg segja mér frá því í kommentum.
Lifið heil og hafið það gott..


