19febrúar
To Hell and back..
Nú er ég kominn aftur heim eftir vel heppnaða ferð á háskaslóðir stórborgarinnar. Þetta var hryllilega gaman og gríðargott og hollt að hitta svona mikið af afskaplega fallegu fólki sem maður elskar svona afskaplega mikið.Ljótu Hálfvitarnir voru stórfenglegir og skinu þó skærar á Laugardagskvöldinu. Þó var fyrra kvöldið hryllilega skemmtilegt líka. Gaman að sjá svona menn eins og Kristján Þór blása í herlúðra eftir langt hlé. Og svo náttúrulega Ibo maður!! Hryllilega fyndið..
Er kominn með nýjan uppáhaldsdisk. Það er "In the absence of truth" með Progg/Black/Death metal bandinu Isis. Furðu hæg, falleg, þung, dapurleg og kraftmikil plata. Og líka kjörin til að keyra á 90 kmh.
Svo fann ég upp nýja apategund á leiðinni heim í gær. Það eru svokallaðir sokkapar! Þetta fannst mér alveg hryllilega fyndið, keyrandi skítþunnur og þreyttur..
bless og skrifiði nú eitthvað fallegt, hnossin mín litlu..

