Blóđ
Lítið að frétta svo sem. Ég náði því loksins um daginn að klára Dark Tower bækurnar eftir Stephen King og mæli ég svo sannarlega með þeim. Afbragðs skemmtun og ekki skemmir fyrir að vera dulítill King-nörd þegar maður leggst í þetta stórvirki. Alls konar vísanir í hinar og þessar bækur eftir höfundinn og alls kyns skemmtilegar tengingar. Var til að mynda býsna mikið um tengingar við eina eldgamla sögu sem heitir Salem´s Lot. Sá ég því enga aðra kosti í stöðunni heldur en að renna í bókabúð og ná í gripinn en þetta er ein fárra bóka King sem ég hef ekkert lesið. Salem´s Lot er sum sé bona fide hryllingssaga um vampírur og ég get svo svarið það að ég held ég sé að drulla á mig! Langt síðan ég hef orðið svona hræddur/spenntur yfir bók. Sem er náttúrulega ekkert nema gott og blessað. Núna er ég kominn með alveg afbragðs paranoiu og sé vampírur í hverju horni! Reyndi til að mynda að reka blýant í gegnum hjartað á pabba þegar hann lét grunsamlega.. Já og svo fer ég ekki út úr húsi lengur nema að hafa hvítlauksknyppi um hálsinn og vígt kók (svona eins og vígt vatn en bara betra á bragðið).
En allavega mæli ég með bæði Dark Tower seríunni og Salem´s Lot. Já og bara Stephen King almennt. Hann er töffari sem hlustar á AC/DC og skrifar skemmtilegar bækur!





